Álbond skilti

Verð frá 6.500 kr

Endingargott álbond skilti sem þolir íslenskt veður. Prentið er plastað til að auka endingu þess.
Afhending: Aðeins sótt hjá Ferró, Vagnhöfða 17. Ekki sent með Dropp.

Pantaðu hér á vefsíðunni eða í gegnum [email protected].

Veldu lögun
Veldu leng (cm)
Veldu leng (cm)
Veldu leng (cm)
Veldu leng (cm)
Vörukostnaður
Valmöguleikar
Samtals
ATH: Sendu skjalið í pdf eða eps formi í stærðinni sem þú pantaðir
Vöruflokkur:
Lýsing

Lýsing

Álbond er 3 mm samlokuplata úr áli. Hún er létt, stíf og ryðgar ekki, svo skiltin þola íslenskt veður vel. Prentið er plastað til að verja það gegn rispum og upplitun. Álbond hentar fyrir fyrirtækjaskilti, hurðaskilti, upplýsinga- og bílastæðaskilti.

Frágangur

  • Göt fyrir skrúfur: 6 mm göt, annaðhvort 2 í efri hornunum eða 4, eitt í hverju horni. 500 kr., óháð fjölda gata.
  • Rúnuð horn: 500 kr. Við veljum radíus sem hentar stærð skiltisins.
  • Tvöfalt límband á bakhlið: 500 kr. Til að líma skiltið á vegg, hurð eða glugga.

Prentskjal

Sendu skjalið í sömu stærð og skiltið (breidd × hæð í cm), helst sem PDF eða vektorskrá. Haltu texta og merkjum frá brúnunum, sérstaklega ef þú velur göt eða rúnuð horn.

Afhending

Álbond skilti eru aðeins afhent hjá Ferró, Vagnhöfða 17. Þau eru ekki send með Dropp.