Lýsing
Foamplötur eru léttar og stífar plötur með frauðkjarna, 10 mm þykkar. Við prentum á hvíta filmu og límum hana á plötuna. Foam skilti henta innandyra, t.d. á sýningar, í verslanir, á viðburði og sem upplýsinga- eða vísunarskilti.
Frágangur
- Tvöfalt límband á bakhlið: 500 kr. Til að líma skiltið á vegg, hurð eða glugga.
Prentskjal
Sendu skjalið í sömu stærð og skiltið (breidd × hæð í cm), helst sem PDF eða vektorskrá.
Afhending
Foam skilti eru aðeins afhent hjá Ferró, Vagnhöfða 17 (aðkoma frá Dvergshöfða). Þau eru ekki send með Dropp.


