Lýsing
Gluggafilman er prentuð eftir þinni hönnun og límd utan á glerið. Frábær leið til að kynna nýjar vörur, tilboð og útsölur. Sláðu inn breidd og hæð hér fyrir ofan og hladdu upp skjalinu.
Hvernig á að líma filmu á glugga
- Þrífðu glerið vel og leyfðu því að þorna. Engin drulla, fita eða kusk má vera þar sem filman á að fara.
- Stilltu filmunni upp þar sem hún á að vera og festu hana með málningarlímbandi á hliðunum.
- Flettu bakpappanum af efstu 4–5 cm og límdu efstu brúnina á glerið.
- Fjarlægðu límbandið, lyftu filmunni og dragðu restina af bakpappanum hægt af.
- Strjúktu filmuna niður með sköfu frá miðju og út að brúnum, svo ekkert loft verði eftir.
Ábending: Límdu ekki í frosti eða bleytu.










