Báðar gerðir eru prentaðar í fullum lit og afgreiddar á rúllu. Munurinn liggur í því hvar límmiðinn á að vera.
Pappír
Hagkvæmasti kosturinn
- Skörp prentun í fallegum litum
- Hægt að skrifa á með penna, t.d. dagsetningu
- Hentar á þurrt yfirborð innandyra
Best fyrir: pappírspoka, kassa, gjafaumbúðir, kaffipoka, umslög og merkingar á vörum sem haldast þurrar.
Plast
Þolir vatn, raka og kulda
- Rifnar ekki og þolir að blotna
- Helst fallegur í kæli og við meðhöndlun
- Endist lengur á vörum sem eru oft handfjatlaðar
Best fyrir: flöskur, krukkur, kælivörur, snyrtivörur, sápur og umbúðir sem geta blotnað.
Ertu ekki viss hvort hentar? Sendu okkur línu og við ráðleggjum þér.










