Lýsing
Sandblástursfilmur eru einföld leið til að skapa næði og gefa glerflötum fallegt, matt útlit. Þær henta meðal annars á glugga, glerhurðir og glerveggi á heimilum og vinnustöðum.
Mældu flötinn vandlega áður en þú pantar og veldu síðan lögun og stærð hér fyrir ofan.
Uppsetning á gleri
- Hreinsaðu glerið vandlega. Það þarf að vera laust við fitu, ryk og önnur óhreinindi.
- Mældu fyrir filmunni og merktu hvar hún á að sitja.
- Úðaðu létt á glerið með vatni og örlitlum uppþvottalegi.
- Fjarlægðu bakpappann varlega og leggðu filmuna á glerið.
- Strjúktu með sköfu frá miðju og út að brúnum til að þrýsta vatni og loftbólum undan filmunni.
- Þurrkaðu umfram vatn af og leyfðu filmunni að þorna vel.
Ábending: Gott er að vera tvö við uppsetningu á stærri filmum.









